Framboðslisti L-listans á Akureyri hefur verið samþykktur en það er Gunnar Líndal Sigurðsson sem leiðir listann.
„L-listinn býður fram öflugan hóp af fólki til starfa fyrir bæjarfélagið í sveitastjórnarkosningunum í vor. Þrjú af sex efstu sætum eru skipuð kraftmiklu nýju fólki sem verða studd af reynsluboltum fyrri ára. Eins og alltaf stendur L-listinn fyrst og fremst fyrir hag bæjarbúa og styrkur listans liggur í að virkja gott fólk til góðra verka," segir í tilkynningu sem send var fjölmiðlum í dag.
„Á síðasta kjörtímabili hefur L-listinn átt frumkvæðið að djörfum breytingum á starfsháttum bæjarstjórnar á erfiðum tímum og við teljum að bæjarfélagið sé að sjá afraksturinn af því nú. Skilyrði til endurbóta og bættrar þjónustu við bæjarbúa eru mun betri en mátti eiga von á og er það samstilltu átaki að þakka. Framboðslistinn fyrir kosningarnar 2022 endurspeglar þá stefnu L-listans að byggja á árangri síðustu ára á sama tíma og nýjum og ferskum hugmyndum er gefið brautargengi,“ segir jafnframt í tilkynningunni.