27. febrúar, 2008 - 12:27
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsóttu Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit í morgun,
þar sem tekið var vel á móti þeim. Heimsóknin tengist því að Hrafnagilsskóli hlaut Íslensku menntaverðlaunin árið
2007 í flokki skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun og farsælu samhengi í fræðslustarfi. Fulltrúar Hrafnagilsskóla tóku á
móti forsetahjónunum og fylgdu þeim í íþróttasal skólans, þar sem fram fór dagskrá þeim til heiðurs. Einnig
heimsóttu forsetahjónin kennslustofur og kynntu sér kennsluhætti, aðbúnað og viðhorf nemenda. Nánar er fjallað um heimsókn
forsetahjónanna í Vikudegi á morgun.