Forsætisráðherra fékk ekki heimild til þingrofs

Fréttin hefur verið uppfærð:

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra óskaði eftir því við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að hann veitti honum heimild til að rjúfa þing. Ólafur Ragnar sagðist ekki tilbúinn til að veita heimild til þess að svo stöddu þar sem forsætisráðherra náði ekki að sannfæra hann um að Sjálfstæðisflokkurinn væri samþykkur því að rjúfa þing.  Þetta kom fram á skyndilegum blaðamannafundi sem lauk á Bessastöðum fyrir skemmstu.

Uppfært:

Ólaf­ur Ragn­ar Grímsson sagði að Sig­mund­ur Davíð hefði verið að kanna af­stöðu hans og óska eft­ir því að hann veitti hon­um heim­ild til að rjúfa þing nú eða síðar. Með Sig­mundi Davíð í för voru emb­ætt­is­menn for­sæt­is­ráðuneyt­is­ins en þeir höfðu í sínum fórum bréf sem óskað var eft­ir að for­seti und­ir­ritaði. 

Ólaf­ur Ragn­ar sagðist hafa rætt málið nokkuð lengi við forsætirráðherra og að hann hefði út­skýrt af­stöðu sína. „For­seti hlýt­ur að meta hvort stuðning­ur sé við þá ósk hjá rík­is­stjórn­ar­flokkun­um og hvort lík­legt sé að þingrof leiði til far­sællar niður­stöðu, bæði fyr­ir þjóðina og stjórn­ar­farið í land­inu,“ sagði Ólaf­ur Ragn­ar. 

For­sæt­is­ráðherra náði ekki að full­viss­a Ólaf Ragnar um af­stöðu Sjálfstæðisflokks­ins til að verða við þingrofs­beiðninni. Í ljósi þess sagði forsetinn Sigmundi Davíð að hann væri ekki reiðubúinn til þess á þessari stundu. Hann vildi ræða fyrst við formann Sjálfstæðisflokks­ins eða jafn­vel formenn annarra flokka, að veita hon­um heim­ild til að rjúfa þing. 

For­seti mun funda með Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­málaráðherra og for­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins, eft­ir nokkr­ar klukku­stund­ir.Að loknum þeim fundi ætl­ar for­seti að óska eft­ir fundi með for­seta Alþing­is og meta stöðuna í fram­hald­inu hvort hann muni óska eft­ir fundi með for­mönn­um annarra flokka.

Nýjast