Boðað er til borgarafundar í Deiglunni á Akureyri í kvöld, 2. apríl kl. 20.00, undir yfirskriftinni: Við viljum breytingar? - Hvað vilja
frambjóðendur? Frummælendur verða Margrét Ingibjörg Ríkarðsdóttir, þroskaþjálfi og forstöðumaður
Hæfingarstöðvarinnar og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor og sérfræðingur við RHA. Að loknum framsögum verða fulltrúar
stjórnmálahreyfinga í pallborði.
"Eftir efnahgashrun og ógöngur síðustu mánuða krefjast kjósendur breyttra vinnuaðferða af hálfu ráðamanna. Vilja
frambjóðendur breytingar? Fáum við breytingar eða verður allt við það sama eftir kosningar?," segir m.a. í fundarboði.