Fjórir á slysadeild eftir bílveltu

Fjór­ir menn á aldrinum 19 – 20 ára voru flutt­ir með sjúkrabílum á slysa­deild Sjúkra­hússins á Ak­ur­eyri til aðhlynningar eft­ir bíl­veltu. Slysið varð neðst í Bakka­sels­brekk­u í Öxna­dal um klukkan tíu í gær­kvöldi.

Samkvæmt upplýsingum frá lög­regl­unn­i á Ak­ur­eyri eru mennirnir ekki tald­ir al­var­lega slasaðir. Fólksbif­reið sem þeir voru í fór tvær til fjór­ar velt­ur og er gjör­ónýt. Ekki er vitað að svo stöddu hvað olli því að bíllinn fór útaf veg­in­um. 

Nýjast