Fjölbreytt sýning í Ketilhúsinu

Listhúshópurinn opnar sýninguna „39 Norður" í Ketilhúsinu á Akureyri laugardaginn 11.júlí kl.14.00.  Listhúshópurinn er fjölbreyttur hópur listamanna sem ráku saman Listhús 39 í Hafnarfirði á árunum 1994 til "97 og hefur haldið hópinn síðan. Á sýningunni verða verk úr flestum greinum myndlistar: grafík, skúlptúr, keramik, textíll, collage, ljósmyndir og málverk eftir 14 listamenn.  

Allir eru velkomnir á opnun, en sýningin stendur til 26. júlí. Listhús 39 var staðsett að Strandgötu 39, gegnt listasafni Hafnarfjarðar, Hafnarborg. Í verslunarrými voru verk Listhússfélaga til sýnis og sölu, en í bakherbergi var sýningarrými með óvenjulegan karakter. Mikið líf og fjör var jafnan í kringum sýningarhald í Listhúsi 39 og þar voru haldnar ótal einkasýningar á tímabilinu auk samsýninga Listhússhópsins, meðal annars þemasýningarnar „Englar og erótík" og „Dýrgripir". Á sýningunni í Ketilhúsinu ræður fjölbreytnin ríkjum og er óhætt að hvetja áhugamenn um myndlist að fjölmenna á þessa áhugaverðu sýningu.

Nýjast