Stjórn Akureyrarstofu tók fyrir á dögunum fjölda umsókna um styrki úr Menningarsjóði og Húsverndarsjóði. Hátt í þrjátíu spennandi menningarverkefni fengu verkefnastyrk eða samning við Menningarsjóð og einnig voru tveir styrkir veittir úr Húsverndarsjóði. Mikil fjölbreyttni einkenndi verkefnin sem sótt var um fyrir til Menningarsjóðs. Má sem dæmi nefna ljósmyndasýningar,gjörninga,kvikmyndun, listnámskeið fyrir ungt fólk, tónleika,myndlist og leiklist. Einnig voru samþykktir nokkrir samstarfssamningar við félög sem starfa í listum og við að viðhalda menningararfinum. Veittir voru tveir styrkir úr Húsverndarsjóði og voru þeir veittir vegna endurbóta á Strandgötu 27 og Hafnarstrætis 86. Hérna má sjá reglur Menningarsjóðs Akureyrar og samþykkt Húsverndarsjóðs og hlekki inn á fundargerðir þar sem afgreiddir voru styrkir Menningarsjóðs og Húsverndarsjóðs. (akureyri.is)
Nánar verður fjallað um þessi mögnuðu verkefni hér á dagskrain.is og í Vikudegi.