Fjögurra ára stúlka féll niður rúllustiga í verslun Rúmfatalagersins

Fjögurra ára stúlka féll niður af handriði rúllustiga í verslun Rúmfatalagersins á Akureyri rétt fyrir hádegi í dag. Að sögn lögreglunnar á Akureyri féll stúlkan niður um tæpa 6 metra á teppalagt gólf. Lögregla og sjúkralið voru kölluð út og að sögn lögreglu er ekki vitað um líðan stúlkunnar að stöddu, en hún var flutt á slysadeild til aðhlynningar, segir á vef Mbl. Verslun Rúmfatalagersins var opnuð í nýju húsnæði í morgun en hún er í viðbyggingu við Glerártorg. Nýja verslunin er í mun stærra húsnæði en sú sem fyrir var á Glerártogi. „Þetta er veruleg stækkun, við vorum í 800 fermetra húsnæði á gamla staðnum, en nú verðum við með 1700 fermetra á jarðhæð auk um 1100 fermetra á 2. hæð. Þetta verður mjög rúmgóð búð," sagði Birgir Reynisson verslunarstjóri Rúmfatalagersins á Akureyri, í samtali við Vikudag. Hann segir að vöruúrval muni í kjölfarið aukast og þá megi einnig gera ráð fyrir að starfsfólki verði fjölgað. Nú starfa allt í allt um 30 til 35 manns í versluninni með skólafólki í hlutastarfi. Rúmfatalagerinn er fyrst verslana til að flytja í viðbyggingu við Glerártorg, „við verðum þarna ein til að byrja með, eða fram í maí," segir Birgir. Hann segir að þar sem verslunin var áður til húsa verði tengigangur milli eldra og nýrra húsnæðis auk þess sem verslanir verði í hliðarplássum. Alls verða um 50 verslanir á Glerártorgi þegar það verður allt komið í notkun.

Nýjast