Afar fjölsótt og vel heppnuð Hríseyjarhátíð var haldin um síðustu helgi. Á kvöldvöku laugardagskvöldsins var tilkynnt um úrslit í samkeppni um nafn á fjarvinnusetrið í eyjunni. Frá þessu er greint á vefsíðu Akureyrarbæjar.
Fyrir valinu varð „Fjarbúðin“ en tvö stungu upp á því heiti; þau Hallgrímur Helgason rithöfundur og Anna Guðmundsdóttir. Anna sendi inn sína tillögu án þess að geta um netfang eða símanúmer og er óskað eftir að hún hafi samband við Ásrúnu Ýr Gestsdóttur, starfsmann Akureyrarbæjar í Hrísey í netfangið asrun.yr.gestsdottir@akureyri.is ef hún sér þessa frétt.
Alls bárust 57 tillögur að nafni á fjarvinnusetrið frá 35 einstaklingum en stundum var um sömu tillöguna að ræða eins og í tilviki Önnu og Hallgríms.
Ýmsar skemmtilegar skýringar bárust á tillögunum en vinningstillagan felur í sér skírskotun til bæði fjarbúðar sambúðarfólks og einnig til verbúðar.
Fjarbúð má skilgreina sem svo að átt sé við að einstaklingar sem eru í staðfestri samvist búi ekki saman um hríð, af einhverjum ástæðum, til dæmis vegna atvinnu annars þeirra sem krefst langvarandi fjarvista frá hinu án þess þó að um skilnað að borði og sæng sé að ræða. Verbúð er hins vegar dvalarstaður fiskverkafólks í takmarkaðan tíma eða íverustaður sjómanna á vertíð. Fjarbúð á því vel við um fólk sem stundar vinnu sína fjarri heimili sínum til lengri eða skemmri tíma.