Fer í veikindaleyfi

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi, segir frá því á Facebook síðu sinni að hann þurfi að taka sér frí frá störfum og að hann væri á leið á Vog í áfengismeðferð

,,Seinasta haust horfðist ég í fyrsta skiptið í augu við það að ég og áfengi ættum ekki samleið. Ég sá að ég ætti við drykkjuvanda og stríða og þyrfti að hætta. Ég tók mikilvæg en á köflum erfið skref í rétta átt og tókst nokkuð vel að snúa blaðinu við þó ég segi sjálfur frá. Svo skall á með þingkosningum og ég var kjörinn þar inn, sem ég hef enga trú á að hefði getað gerst hefði ég ekki orðið edrú fyrr um árið.
 
Því miður hefur orðið bakslag í þessum efnum. Ég missteig mig, og get engum um kennt nema sjálfum mér. Ég er miður mín gagnvart vinum mínum og fjölskyldu sem ég hef valdið vonbrigðum, sem og samstarfsfélögum á þinginu og í Viðreisn. Ég ætla mér að snúa blaðinu við svo ég geti staðið almennilega undir því sem ég lofaði kjósendum mínum að vera, öflugur fulltrúi á þingi.
 
Í dag held ég á sjúkrahúsið Vog og fer þar af leiðandi í leyfi frá þingstörfum. Ég ætla að sigrast á þessum djöfli, svo mér geti liðið vel með sjálfan mig og lífið á ný. Á meðan ég tek mér tíma í þetta verkefni mun Norðausturkjördæmi og Íslendingar allir (Austurlandið ekki síst) eiga frábæran og öflugan fulltrúa í Heiða Ingimarsdóttir (þgf) ég veit að mun standa sig með glæsibrag."
 
 
 
 
 

 

 
 
 
 

 

Nýjast