29. september, 2008 - 20:08
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur samþykkt tillögu Guðmundar Jóhannssonar sveitarstjóra, um að ráðist verði í framkvæmdir
við norðurhluta heimavistarhúss Hrafnagilsskóla svo þar megi taka til starfa ný aðstaða Félags aldraðra á 20 ára afmæli
félagsins sem verður á vormánuðum 2009.
Ráðgert er að verkefnið verði unnið í samráði við Félag aldraðra. Fyrir liggur kostnaðaráætlun upp á 7,2
milljónir króna og í fjárhagsáætlun ársins 2008 er gert ráð fyrir fjárveitingu til verkefnisins.