Félag eldri borgara á Akureyri sækir um lóðir við Þursaholt Hafnað því ekki er búið að ákveða hvernig á að úthluta lóðunum

Akureyrarbær hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig lóðum við Þursaholt verður úthlutað. Umsókn Félags…
Akureyrarbær hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig lóðum við Þursaholt verður úthlutað. Umsókn Félags eldri borgara á Akureyri, EBAK sem sótti um lausar lóðir á svæðinu var því hafnað. Hreyfing er komin á uppbyggingu hjúkrunarheimilis á svæðinu en Inga Sæland félags- og húsnæðisráðherra var norðan heiða á dögunum og skrifaði undir saming um 80 rýma hjúkrunarheimili við Þursaholt 2. Hér er hún m.a. með Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra, Pétri Inga Haraldssyni skipulagsfulltrúa og að baki þeim má sjá í Karl Erlendsson formann Félags eldri borgara á Akureyri og Björn Snæbjörnsson formann Landssambands eldri borgara.

Akureyrarbær hefur ekki tekið ákvörðun um hvernig lóðum við Þursaholt verður úthlutað. Umsókn Félags eldri borgara á Akureyri, EBAK sem sótti um lausar lóðir á svæðinu var því hafnað.

Félag eldri borgara sótti um lóðir númer 1, 3, 8, 10 og 12 til 16 til að byggja þar fjölbýlishús í svonefndum lífsgæðakjarna. Þetta eru allar lóðir sem lausar eru við Þursaholt ef frá er talin sú sem nýtt verður undir hjúkrunarheimili og þær sem þegar hefur verið byggt á. Ebak óskaði eftir að fá lóðirnar án auglýsingar og á listaverði hvað varðar byggingarétt og gatnagerðargjöld, en afsláttur væri vel þegin eins og það er orðað í umsókninni.

Mikil þörf á íbúðum fyrir eldra fólk

Fram kemur í greinargerð með umsókn félagsins að mikil þörf sé fyrir íbúðir fyrir eldra fólk í bænum. Alls séu slíkar íbúðir 230 talsins. Ekkert hafi verið byggt með þarfir eldra fólks í huga frá árinu 2013 þegar húsið við Undirhlíð 3 var reist.

Samkæmt húsnæðiskönnun sem gerð var í fyrravor meðal eldri borgara er þörf fyrir íbúðir fyrir eldri borgara ríflega 550 á næstu 10 árum og þegar horft er 20 ár fram í tímann séu þær 918 talsins.

Léttir álagi af hjúkrunarheimilum

Félagið hyggst bygga íbúðir í samvinnu við félagið ÍBA+55 sem er þekkingar- og þróunar- og framkvæmdafélag sem hefur það markmið að byggja íbúðir sem eiga að nýtast fólki frá miðjum aldri og út lífið. Þannig geti það styrkt stöðuna til að takast á við heilsufarsáskoranir þegar aldurinn færist yfir með búsetu í sérhönnuðu húsnæði. Fólki sé þannig gert kleift að búa sem lengst heima hjá sér. Fyrirkomulagið sé líka liður í að létta álagi af hjúkrunarheimilium og fækka innlögnum á sjúkrahús.

Það er stefna Akureyrarbæjar að á að minnsta kosti hluta af óbyggðum lóðum við Þursaholt verði reistar íbúðir fyrir aldraða. Skipulagsráð metur það svo að mikilvægt sé að sú

uppbygging verði í samhengi við uppbyggingu hjúkrunarheimilisins á lóð númer 2 og að tilvonandi lóðarhafar hafi fjárhagslega burði og reynslu til að koma að uppbyggingunni.

Nýjast