Fashion Group bauð lægst í stúkubyggingu á Þórssvæði

Fyrirtækið Fashion Group efh. í Garðabæ átti lægsta tilboð í byggingu stúku á félagssvæði Þórs en það hljóðaði upp á 282,3 milljónir króna eða um 95% af kostnaðaráætlun hönnuða. Alls bárust átta tilboð og eitt frávikstilboð í verkið en tilboðin voru opnuð hjá Fasteignum Akureyrarbæjar í gær.  

Aðeins eitt tilboð var undir kostnaðaráætlun, sem er upp á 295,8 milljónir króna. SS Byggir átti næst læsta tilboð í verkið, tæpar 313,7 milljónir króna eða 106% af kostnaðaráætlun.

Hyrna bauð 316,6 milljónir króna, eða 107%.

Fjölnir bauð 324,6 milljónir króna eða 109,7%. Völvusteinn bauð 342,8 milljónir króna eða 115,9%.

Virkni bauð 361,2 milljónir króna eða 122,1%.

P.A. byggingaverktaki bauð bauð 371,3 milljónir króna eða 125,5%.

Ístak bauð 407,8 milljónir króna eða 137,9% af kostnaðaráætlun.

Nýjast