Í tilefni af flutningi Langanesbyggðar í nýja skrifstofu að Langanesvegi 2, Þórshöfn kom Sigurður Þór Guðmundsson oddviti Svalbarðshrepps færandi hendi. Hann hafði meðferðis málverk eftir listakonuna Tinnu Halldórsdóttur og færði sveitarfélaginu að gjöf.
Á vef Langanesbyggðar segir að verkinu verði komið fyrir á hinni nýju skrifstofu.