AkureyrarAkademían auglýsir eftir umsóknum um vinnuaðstöðu til að vinna að þróun nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefna í samstarfi við Akureyrarbæ.
Vinnuaðstaðan er í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, Sunnuhlíð 12, Akureyri, og er án endurgjalds og hugsuð sem styrkur til viðkomandi verkefna. Tímabil sem auglýst er til úthlutunar eru sex mánuðir frá 1. september 2024 og til 28. febrúar 2025. Umsóknir um heil tímabil hafa að öðru jöfnu forgang en heimilt er að úthluta vinnuaðstöðu til skemmri tíma. Verklagsreglur um stuðninginn má finna hér.
Við mat á umsóknum er m.a. tekið mið af eftirfarandi þáttum:
Umsóknir eru sendar á netfang AkureyrarAkademíunnar. Í umsókn gerir umsækjandi grein fyrir því verkefni sem ætlunin er að vinna að, sem og að veita upplýsingar um bakgrunn sinn og feril.