Enn tapar Þór

Þór tapaði sínum fimmta leik í röð í 1. deild karla í knattspyrnu er liðið beið lægri hlut gegn Selfyssingum í dag. Lokatölur á Selfossvellinum urðu 1-0 sigur heimamanna. Það var markahrókurinn í liði Selfyssinga, Sævar Þór Gíslason, sem skoraði eina mark leiksins.

Eftir sex leiki er Þór aðeins með þrjú stig í næstneðsta sæti deildarinnar og staða þeirra heldur áfram að versna.

Nýjast