Háskólinn á Akureyri ritaði í gær undir samstarfssamning um aðkomu að Sjávarútvegsskólanum. Hann hefur verið starfræktur á Neskaupstað síðustu þrjú sumur. Síldarvinnslan, Fjarðarbyggð og fleiri fyrirtæki á Austurlandi starfrækja skólann. Markmiðið með skólanum er að vekja áhuga á sjávarútvegi og menntun í sjávarútvegsfræðum meðal ungs fólks. Þetta kom fram á vef Rúv. /EPE