Enginn titill

Ósk Helgadóttir, varaformaður Framsýnar, í ræðustól. Mynd: Heiðar Kristjánsson.
Ósk Helgadóttir, varaformaður Framsýnar, í ræðustól. Mynd: Heiðar Kristjánsson.

 

Framsýn, stéttarfélag í Þingeyjarsýslu, í samstarfi við Jafnréttisstofu,  stóð fyrir opnum fundi á Húsavík s.l. laugardamorgun í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Fundurinn heppnaðist afar vel, en um 80 konur og karlar mættu til fundarins og voru konur raunar í miklum meirihluta.

Ræðumenn dagsins voru, Kristín Ástgeirsdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Dagbjört Jónsdóttir og Ósk Helgadóttir. Boðið var upp á mögnuð tónlistaratriði í bland við fróðlegar og skemmtilegar ræður. Auka ræðuhalda og menningaratriða var bragðgóð súpa í boði. Nánar verður fjallað um þessa samkomu í Skarpi í vikunni.JS

Nýjast