Áætlunin verður líklega lögð fram í bæjarstjórn í desember. "Það hafa ekki verið teknar neinar ákvarðanir varðandi niðurskurð eða hækkun gjalda og það kemur fyrst í ljós þegar áætlunin verður lögð fram hvernig landið liggur í þeim efnum. Verkefni okkar er að standa vörð um grunnþjónustuna, leik- og grunnskóla, heilsugæsluna, öldrunarheimilin og velferðarþjónustu - þ.e. þjónustu sem snertir íbúana á hverjum degi," segir Sigrún Björk bæjarstjóri.