Eldur í íbúð í Aðalstræti á Akureyri

Slökkviliðið á Akureyri var kallað út á fjórða tímanum í dag, er tilkynnt var um reyk í húsinu að Aðalstræti 13. Fjölmargir slökkviliðsmenn eru á staðnum og eru þeir byrjaðir að rífa klæðingu hússins, sem er bárujárnsklætt timburhús. Í húsinu eru tvær íbúðir og var íbúðin sem eldurinn komu upp í, mannlaus. Ungt par í hinni íbúðinni barn þeirra komust út heilu og höldnu.  

Að Þorbjörns Haraldssonar slökkviliðsstjóra, fann íbúi sunnar í götunni reykjarlykt og þegar hann fór að kanna málið betur, heyrði hann í reykskynjara í íbúðinni og gerði slökkviliði viðvart, sem og fólkinu í hinni íbúðinni. Sem fyrr segir eru slökkviliðsmenn enn að störfum en ljóst er þarna hefur orðið mikið tjón.

Nýjast