Íslensku vetrarleikarnir á Akureyri ná hámarki um næstu helgi með stórsýningu á svokölluðum eldfjallapalli í Hlíðarfjalli á föstudagskvöld og Meistaramóti Íslands á snjóbrettum á laugardag. Skorað er á bæjarbúa og gesti bæjarins að fjölmenna í Hlíðarfjall á föstudagskvöld til að verða vitni að litríkri keppni og sýningu með tilheyrandi flóðlýsingu og trumbuslætti. Margir af bestu snjóbrettaköppum Íslands keppa á lokuðu stórmóti og heimsþekktir atvinnumenn mætast í einvígi Evrópu og Norður-Ameríku á risastórum eldjallastökkpalli sem reistur hefur verið sunnan við Fjarkann, stóru stólalyftuna. Þetta er hæsti stökkpallur þessarar gerðar sem reistur hefur verið á Íslandi og þarf mikla leikni og hugrekki til að þora að fljúga fram af honum. Einnig verður á dagskránni skíðastökk með frjálsri aðferð og vélsleðastökk og vélsleðaspyrna.
Boðið verður upp á ókeypis rútuferðir til og frá Hlíðarfjalli og rjúkandi heitt frítt kakó handa gestum. Rúturnar leggja af stað kl. 19.00 frá verslun 66° norður í miðbænum og kl. 19.00 frá Icelandair Hótel. Heimferð úr Hlíðarfjalli verður kl. 22.30. Þetta kvöld verður opið í Fjarkann til kl. 21.30. Almenn vetrarkort gilda og kort sem keypt hafa verið yfir daginn. Þeir sem mæta eftir kl. 19 og vilja taka sér far með Fjarkanum, geta keypt lyftukort gegn vægu gjaldi í afgreiðslu Hlíðarfjalls.
Meistaramót Íslands á snjóbrettum og skíðum með frjálsri aðferð verður haldið í Hlíðarfjalli á laugardag frá kl. 13-16 en keppt verður í þremur flokkum. Síðan verður keppt á snowcross-hjólum og snjósleðum á sérstakri spyrnubraut við Réttarhvamm kl. 16-17 og loks stendur brettadeild Skíðafélags Akureyrar fyrir skemmtilegri þrautakeppni á rörum og boxum á Ráðhústorgi frá kl. 19-21. Keppt verður í dúndrandi stemningu með flóðlýsingu og tónlist á sérstökum pöllum sem reistir hafa verið á torginu.