14. febrúar, 2008 - 13:00
Í innkaupareglum Akureyrarbæjar eru m.a. ákvæði um að verktakar sem vinna hjá Akureyrarbæ skuli vera í skilum með launatengd gjöld og
á grundvelli þessa ákvæðis hefur verið fylgst með þessu af hálfu bæjarins. Ekki eru í innkaupareglunum ákvæði af
þessu tagi um undirverktaka og Akureyrarbær því ekki í stöðu til beinna afskipta af þeim. Innkaupareglunum er m.a. ætlað að stuðla
að samkeppni á markaði varðandi sölu á vörum, verkum og þjónustu til Akureyrarbæjar. Bæjarráð hvetur þá verktaka
sem vinna á vegum bæjarins til að sjá til þess að undirverktakar þeirra virði reglur vinnumarkaðarins og greiði tilskilin gjöld vegna
starfsmanna sinna til viðkomandi stéttarfélags.
Þessi bókun bæjarráðs Akureyrar frá því í morgun er til komin í kjölfar erindis frá Birni Snæbjörnssyni formanni
Einingar-Iðju, varðandi fyrirspurn til ráðsins um úttekt á/eftirlit með undirverktökum sem vinna við opinberar framkvæmdir á vegum
bæjarins. Bæjarráð fól bæjarlögmanni og hagsýslustjóra að hefja undirbúning að endurskoðun innkaupareglna
Akureyrarbæjar.
Baldvin H. Sigurðsson sat hjá við afgreiðslu en lagði fram bókun svohljóðandi: "Ég fer þess á leit við bæjarráð
Akureyrar að ráðið krefjist þess af verktökum og undirverktökum á þeirra vegum sem starfa fyrir bæjarfélagið, að þeir
hlíti reglum vinnumarkaðarins um lög og lágmarkskjör starfsmanna sem starfa við framkvæmdir sem unnar eru fyrir Akureyrarkaupstað."