Meirihluti skipulagsnefndar Akureyrar telur að ekki sé þörf á mati á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra framkvæmda Becromal í Krossanesi,
þar sem ítalska fyrirtækið ætlar að byggja upp aflþynnuverksmiðju. Jóhannes Árnason fulltrúi VG greiddi atkvæði gegn
þeirri afgreiðslu nefndarinnar. "Hér er um að ræða langtíma stefnumótun um starfsemi sem getur haft umtalsverð áhrif á umhverfið.
Ég tel rétt að formlegt mat á umhverfisáhrifum fari fram," segir í bókun Jóhannesar.
Skipulagsnefnd barst erindi þar sem Sigurður Ásbjörnsson f.h. Skipulagsstofnunar óskaði eftir umsögn Akureyrarbæjar um hvort og á hvaða
forsendum fyrirhuguð framkvæmd Becoromal í Krossanesi skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Fram kemur í skýrslu Línuhönnunar að
helstu þættir framkvæmdarinnar sem taldir eru geta valdið áhrifum séu meðhöndlun úrgangs, frárennsli, kælivatnsnotkun og loftmengun.
Færð eru rök fyrir því að umhverfisáhrif þessara þátta séu lágmörkuð og neikvæð áhrif geti ekki
talist mikil. Meirihluti skipulagsnefndar gerir ekki athugasemdir við niðurstöður skýrslu Línuhönnunar um að heildaráhrif þessara framkvæmda
séu lágmörkuð og neikvæð áhrif geti ekki talist mikil og því sé ekki að þörf á mati á umhverfisáhrifum
vegna þeirra.