Ævi Kristins er ofin í ull allt frá því hann lék sér við verksmiðjulækinn sem barn þar til hann lét af störfum sem ullarfræðingur. Eftir nám í Englandi hóf Kristinn störf við Gefjun þar sem hann hafði m.a. með höndum að blanda saman ullarhárum sauðkindanna til að búa til "sauðalitina" í ullargarni sem enn er notað í dag. Ennfremur hönnun á mynstri værðarvoða og margt fleira sem lítur að vinnslu og hönnun á ullarvörum. M.a. á Kristinn stóran þátt í hönnun á þeim varningi sem seldur var í vöruskiptum við Rússland og taldi milljónir af ullarvörum.
Fyrirlesturinn og sýningin eru á vegum Iðnaðarsafnsins á Akureyri með dyggum stuðningi Menningarráðs Eyþings. Iðnaðarsafnið geymir muni sem tengjast iðnaði og iðnframleiðslu liðinna tíma. Allt frá smjörlíkisgerðarvélum, prentvélum prjónavélum, ölgerðarvélum og rennibekkjum til saumavéla og áhöldum til úrsmíða. Fjöldi tækja og véla úr verksmiðjunum sem notaðar voru til framleiðslu á vörum auk allskyns nytjahluta og iðnvarnings sem flestir þekkja. Iðnaðarasafnið er opið alla daga frá kl. 13-17 og enginn aðgangseyrir er fyrir börn yngri en 16 ára.