Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys á Moldhaugnahálsi

Bílslys varð rétt fyrir utan Akureyri, á svokölluðum Moldhaugnahálsi, á áttunda tímanum í kvöld. Einn var fluttur á sjúkrahús með nokkur meiðsl, sem þó eru ekki talin lífshættuleg. Hann gat sjálfur hringt á neyðarlínuna og beðið um hjálp, og var með meðvitund allan tímann. Loka þurfti veginum til að lögregla gæti athafnað sig á slysstaðnum.  

Slysið varð þannig að pallbíll og fólksbíll komu hvor á móti öðrum og rákust saman. Bílarnir eru báðir talsvert mikið skemmdir, en fólksbíllinn þó sýnu verr. Mjög slæmt veður eru í Eyjafirðinum núna og víða á Norðurlandi og er talið að slæmar veðuraðstæður hafi átt sinn þátt í því að slysið varð. Þetta kemur fram á mbl.is.

Nýjast