Einn var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri þegar tveir fólksbílar skullu saman við Arnarvatn í Mývatnssveit rétt fyrir klukkan 18 í gærkvöldi. Fjórir voru í bílunum tveimur.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík eru báðir bílarnir óökufærir eftir áreksturinn. /epe