Eftirlit með ölvunar- og vímu- efnaakstri á Eyjafjarðarsvæðinu
15. desember, 2008 - 14:14
Undanfarið hefur hefur lögreglan á Eyjafjarðarsvæðinu verið með sérstakt eftirlit með ölvunar- og vímuefnaakstri. Í
síðustu viku voru 823 ökumenn stöðvaðir á Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði og Siglufirði.
Af þeim er einn ökumaður grunaður um að hafa verið ölvaður við akstur og annar að hafa verið undir áhrifum vímuefna.
Þá kom í ljós að 34 ökutæki voru ekki með ljósabúnað í lagi og 103 ökumenn ekki með ökuskírteini sitt
meðferðis.
Fyrir helgi afhenti atNorth Hollvinum Sjúkrahússins á Akureyri styrk að upphæð 500.000 krónur. Styrkurinn tengist þátttöku starfsfólks SAk í Akureyrarhlaupinu í sumar, þar sem sjúkrahúsið var meðal þeirra vinnustaða sem tóku þátt í sérstakri áskorun tengdri hlaupinu. Í kjölfarið fékk SAk tækifæri til að velja góðgerðarmál sem atNorth myndi styðja og varð Hollvinafélag SAk fyrir valinu.
Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi var haldin á Norðurhjarasvæðinu á dögunum þar sem ferðaþjónustu fólk kynntist fjölbreyttri starfsemi sem þar fer fram, sögu og nærumhverfi.
Sjúkradeild Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík tók 19. október við veglegri gjöf frá Krabbameinsfélagi Suður-Þingeyinga. Um er að ræða tvö fullbúin sjúkrarúm og blöðruskanna, en samanlagt verðmæti gjafanna er um 4,5 milljónir króna.
Að skuldbinda sig til einhvers er að skylda sig til einhvers eða heita einhverju með hátíðlegi loforði samkvæmt íslenskri orðabók. Þetta orð hefur leitað á huga minn í talsverðan tíma. Ég er nú einu sinni þannig gerð að heilinn í mér á það til að festast í einhverjum hugrenningum og þetta orð er eitt af þeim.
Mér finnst skuldbinding fólks fara þverrandi.
Minnisvarðinn um síðutogara og síðutogarasjómenn hefur fengið afar jákvæðar viðtökur frá því hann var settur upp skammt norðan við athafnasvæði Siglingaklúbbsins Nökkva á Höefnerssvæðinu. Hann hefur vakið athygli bæði innanlands og utan. Eldri togarasjómenn stóðu fyrir söfnun vegna minnisvarðans, en þeir standa nú frammi fyrir því að um 1,5 milljónir króna vantar upp á til að greiða niður síðustu skuldir vegna þessa verkefnis.
Farþegum með Grímseyjarferjunni Sæfara fjölgaði milli ára samkvæmt nýjum tölum fyrir tímabilið 1. maí til 1. september. Sumarið 2025 flutti ferjan 6.028 farþega en sumarið 2026 voru farþegarnir 6.029. Það fjölgaði um einn farþega á tímabilinu.
Lögreglan á Norðurlandi eystra fer fram á fjármögnun fyrir sjö ný stöðugildi, þar af fimm til almennrar eflingar löggæslu og tvö vegna verkefna sem tengjast ofbeldi gegn börnum.