Söngkonan Kristjana Stefánsdóttir og saxófónleikarinn Sigurður Flosason halda tónleika ásamt kennurum og nemendum Tónlistarskólans á Akureyri mánudagskvöldið 4.maí kl. 20:30 í Hömrum, Hofi. Flutt verða jazzsönglög sem Sigurður og Kristjana hafa hljóðritað á plötunum Hvar er tunglið? og Í nóttinni.
Lögin eru eftir Sigurð við ljóð erftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Kristjana syngur, Sigurður leikur á saxófón og með þeim er hin unga og efnilega Anna Greta Sigurðardóttir á píanó en aðrir hljóðfæraleikarar eru úr kennaraliði Tónlistarskólans á Akureyri; þeir Stefan Ingolfsson á bassa og Rodrigo Lopes á tommur. Nokkrir af söngnemum skólans munu koma fram sem gestir.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.