Á fimmtudag verður smásaga eftir Hildi Knútsdóttur frumflutt í öllum grunnskólum landsins kl. 9.10. Sagan verður samtímis flutt á Rás 1 svo að öll þjóðin getur lagt við hlustir.
Hildur skrifaði söguna Stjarnan í Óríon fyrir börn á aldrinum 6-16 ára í tilefni dags barnabókarinnar að beiðni IBBY á Íslandi, en þetta er í sjöunda sinn sem félagið fagnar deginum með þessum hætti. Hildur hlaut fyrr í vor Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka fyrir nýjustu bók sína, Vetrarhörkur, en bækur hennar hafa fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Stjarnan í Óríon fjallar um stúlkuna Þebu sem uppgötvar glænýja stjörnu á himinhvolfinu. Hildur segir um söguna:
Sagan verður lesin fyrir grunnskólabörn á öllum aldri og er verkefnið hluti af þeirri hugsjón félagsins að lestraráhugi og lestrarfærni fáist fyrst og fremst með því að færa ungum lesendum vandaðar og spennandi sögur. Dagur barnabókarinnar er sunnudaginn, 2. apríl, sem er fæðingardagur H.C. Andersen, en sagan er flutt 30. mars svo allir grunnskólanemar landsins geti hlustað á hana saman. Mjög góð þátttaka hefur verið í sögustundinni undanfarin ár og skemmtileg stemning myndast um allt land.