Dalvík/Reynir úr leik í bikarnum

Dalvík/Reynir tók á móti Hvata frá Blönduósi í VISA- bikarkeppni karla í gær og fór leikurinn fram á Árskógsvelli. Eitt mark var skorað og það gerði Jóhann Örn Jónsson fyrir gestina. Niðurstaðan því eins marks tap hjá Dalvík/Reyni og geta þeir þá einbeitt sér að deildinni á fullu. Dalvík/Reynir á heimaleik á föstudaginn þann 30. maí í D-riðli 3. deildar þegar Huginn kemur í heimsókn.

Nýjast