Dagný Linda Kristjánsdóttir, fremsta skíðakona Íslands um árabil, hefur ákveðið að leggja skíðin á hilluna og hætta æfingum og keppni vegna þrálátra meiðsla.
Dagný Linda hefur átt við meiðsli að stríða í vetur á hægri fótlegg og liggur fyrir að hún þarf að fara í aðgerð til þess að freista þess að fá sig góða af þeim. Ekki er hins vegar tryggt að aðgerð myndi skila fullum bata. Dagný Linda hefur keppt á 316 alþjóðlegum mótum í þrettán þjóðlöndum. Hún hefur tekið þátt í tvennum Ólympíuleikum, þremur heimsmeistaramótum, rúmlega 30 heimsbikarmótum og um 40 Evrópubikarmótum. Dagný Linda hefur 18 sinnum orðið Íslandsmeistari á skíðum, hún hefur sjö sinnum verið valin skíðakona ársins og þrisvar Íþróttamaður Akureyrar.
„Ég er sátt við að hafa tekið þessa ákvörðun þó það séu mér mikil vonbrigði að geta ekki náð því markmiði, sem ég hafði sett mér, að keppa á Ólympíuleikunum í Vancouver í Kanada árið 2010. Það er ljóst að þau meiðsli sem ég hef átt við að stríða í vetur hafa nú sett verulegt strik í reikninginn.
Á mínum ferli hef ég upplifað margt og haft tækifæri til þess að ferðast til fjölmargra landa vegna æfinga og keppni. Fyrir það er ég afar þakklát. Sá stuðningur sem ég hef fengið frá Skíðasambandinu, Akureyrarbæ, fjölmörgum fyrirtækjum, Afrekssjóði ÍSÍ, Skíðafélagi Akureyrar, sjúkraþjálfurum og læknum að ógleymdri fjölskyldu minni hefur verið mér ómetanlegur og án hans hefði ég ekki keppt á skíðunum í öll þessi ár. En meiðsli hafa tekið sinn toll. Ég var frá æfingum og keppni meira og minna í tuttugu mánuði á árunum 2004 og 2005 vegna hnémeiðsla og nú bætast við þessi meiðsli, sem hafa gert mér mjög erfitt fyrir við æfingar og keppni í allan vetur. Að öllu samanlögðu taldi ég því rétt á þessum tímapunkti að láta hér staðar numið, þó svo að ég viðurkenni það fúslega að sú ákvörðun var mér erfið," segir Dagný Linda Kristjánsdóttir, í fréttatilkynningu frá Skíðasambandi Íslands.
Dagný Linda á sérlega glæsilegan feril að baki. Hún keppti á sínu fyrsta FIS-móti árið 1996 og síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið.
Nokkrir punktar um skíðaferil Dagnýjar Lindu: