Búist við þúsundum gesta á sýninguna MATUR-INN 2007

Um helgina verður sýningin MATUR-INN 2007 haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri. Fyrir henni stendur félagið Matur úr héraði - Local Food og er sýningunni ætlað að endurspegla fjölbreytni í mat og matarmenningu á Norðurlandi. Sýning undir sama nafni var haldin fyrir tveimur árum en sýnendur nú eru nálega helmingi fleiri, dagskrá ennþá fjölbreyttari og er búist við þúsundum gesta. Meðal viðburða á sýningunni er úrslitakeppni Klúbbs matreiðslumeistara um titilinn Matreiðslumaður ársins 2007. Sýningin verður opin kl. 11 -17 á laugardag og sunnudag og er aðgangur ókeypis. Formleg opnun verður kl. 14 á laugardag þegar Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, heimsækir sýninguna.

Júlíus Júlíusson, talsmaður sýningarstjórnar og stjórnarmaður í félaginu Matur úr héraði, segir áhuga sýnenda hafa verið mikinn og að norðlenskur matur og norðlensk menning verði sannarlega í sviðsljósinu. „Við erum mjög ánægð með þá miklu flóru þátttakenda sem þarna verður. Í þeim hópi eru allir stærstu matvælaframleiðendurnir á Norðurlandi, stór og smá fyrirtæki og mörg ný og framsækin. Okkar markmið er að festa sýninguna í sessi sem lið í starfsemi félagsins Matur úr héraði - bæði til að vekja athygli á því sem félagið stendur fyrir en ekki síður að vekja athygli út á við á þeim miklu matvælahéruðum sem við eigum hér á Norðurlandi. Við erum stolt af norðlenskum matvælum og matarmenningu og MATUR-INN 2007 er til vitnis um þennan mikla fjölbreytileika. Á síðustu sýningu komu um fimm þúsund gestir og við búumst einnig við þúsundum gesta að þessu sinni, enda aðgangur ókeypis," segir Júlíus.

Eins og áður segir eru sýnendur um 60 talsins og margt verður að sjá og smakka og kaupa í stórum sem smærri básum. Á markaðstorgi geta sýningargestir einnig keypt ýmis norðlensk matvæli, svo sem reyktan silung, kartöflur, grænmeti, fisk, sultur og svo mætti áfram telja. Ýmsar uppákomur verða á sýningarsvæðinu báða sýningardagana. Þar má nefna keppni í samlokugerð, kjötiðnaðarkeppni og fleira á laugardag. Á sunnudaginn verður m.a. matreiðslukeppni þjóðþekktra einstaklinga og þar ætla að reyna með sér þau Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Kristján L. Möller samgönguráðherra, Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri, Ágúst Ólafsson, forstöðumaður RÚV Akureyri og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri LA. Sýningargestir geta fylgst með þeim leika listir sínar í eldhúsinu. Þá verða fræðslustofur (workshop) báða sýningardagana þar sem fjallað verður um bæði mat og vín, hráefnismeðhöndlun, matreiðslu og margt annað sem mat viðkemur. Kynnar á sýningunni verða þau Gestur Einar Jónasson og Margrét Blöndal, útvarpsfólkið góðkunna. Á laugardaginn verður á sýningarsvæðinu úrslitakeppni Klúbbs matreiðslumeistara um titilinn „Matreiðslumaður ársins 2007". Undankeppnir fóru fram síðastliðið vor og munu fimm matreiðslumenn keppa til úrslita á laugardaginn. Þeir eru: Þeir eru Ari Freyr Valdimarsson, Grillinu Hótel Sögu, Eyjólfur Gestur Ingólfsson, Iðjusölum, Þórarinn Eggertsson, Múlakaffi, Þráinn Freyr Vigfússon, Grillinu Hótel Sögu og Ægir Friðriksson, Grillinu Hótel Sögu.
Úrslit í keppninni verða tilkynnt kl. 16 á sýningunni.

Sýningin Maturinn 2007 nýtur stuðnings eftirtalinna aðila: Vaxtarsamnings Eyjafjarðar, landbúnaðarráðuneytins, sjávarútvegsráðuneytisins, Akureyrarstofu, Sparisjóðs Norðlendinga og KEA.

Nýjast