Búinn að hlakka til í heilt ár, að kvíða fyrir jólabaðinu

Mikið líf og fjör verður í Mývatnssveit um helgina og þannig verður það allar helgar fram að jólum. Á laugardaginn verða handverkskonur úr Dyngjunni með árlegan laufabrauðsdag í Mývatnsstofu. Hefur þessi viðburður notið sífellt meiri vinsælda ár hvert en þá gefst gestum og gangandi tækifæri til að taka þátt í laufabrauðsgerð. Geta gestir fengið að skera út í köku og fengið hana steikta og má svo taka hana með sér heim, sem er mjög vinsælt hjá yngri kynslóðinni.  

Í Jarðböðunum verður líka mikið um að vera en þangað hafa jólasveinarnir komið á hverju ári í árlegt jólabað. Ekki eru sveinarnir allir jafn hrifnir af baðinu og var Stúfur leiddur í böndum til baðsins á síðasta ári og er reiknað með að hann muni streitast á móti líka núna og svo hefur gengið illa að fá Askasleiki til að þvo meira af sér heldur en bara tærnar. Jólasveinarnir taka síðan á móti gestum alla daga fram að jólum á Hallarflötinni í Dimmuborgum á milli kl. 13 og 15.

Auk áðurgreindra viðburða má geta þess að um helgina eru jólahlaðborð, bæði hádegis- og kvöldverðar, opin kaffihús, handverk til sölu og fjölmargt annað í boði sem og um allar helgar fram að jólum þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi í Mývatnssveit „töfralandi jólanna".

Nýjast