Starfsgreinasambandið gekk á þriðjudag frá endurnýjuðum kjarasamningi við Bændasamtök Íslands. Samningurinn er í takt við aðra samninga sem gerðir hafa verið undarnfarið milli aðila vinnumarkaðarins og tengjast endurskoðun kjarasamninga. Samkvæmt samningnum sem hefur nú verið undirritaður færast hækkanir sem koma áttu til 1. maí nk. fram til 1. janúar 2016. Þá koma á tímabilinu, það er næstu þrjú ár hækkanir á lífeyrisframlögum atvinnurekenda sem getið verður um í Fréttabréfi stéttarfélaganna sem kemur út fyrir páska.
Segir á vef Framsýnar