Þetta kemur fram í yfirlýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga um aukið samstarf vegna stöðu efnahagsmála. Þar segir ennfremur: Nú ríður á að innan sveitarstjórna ríki einhugur og samheldni. Styrkur sveitarfélaga til að takast á við þann efnahagsvanda sem nú er við að glíma er mismikill. Hvatt er til þess að sveitarfélög endurskoði fjárhagsáætlanir sínar og geri aðgerðaáætlanir þar sem forgangsröðun verkefna miði að því að treysta stoðir grunnþjónustunnar.
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur verið sveitarfélögunum traustur bakhjarl um langt árabil og hefur mikilvægi hans fyrir sveitarfélögin aldrei verið meira en nú. Ástæða er til þess að kanna möguleika á frekari styrkingu hans í þágu sveitarfélaga. Samgönguráðherra og stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga styðja framkomna áætlun lánasjóðsins um lánsfjáröflun fyrir sveitarfélögin og hvetja Seðlabanka Íslands og lífeyrissjóði landsmanna til að koma að því máli af fullum þunga. Þannig má tryggja að þau sveitarfélög sem á þurfa að halda geti lokið umsömdum framkvæmdum, endurskipulagt fjárhag sinn og styrkt lausafjárstöðuna.
Samband íslenskra sveitarfélaga og ráðuneyti sveitarstjórnarmála munu beita sér fyrir auknu og nánara samráði ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál og framkvæmd opinberrar þjónustu. Í því skyni munu ráðherra sveitarstjórnarmála og forysta sambandsins eiga tíða samráðsfundi og auka gagnkvæmt upplýsingaflæði um fjármál ríkis og sveitarfélaga. Meginmarkmið aðila er að vinna sameiginlega að því treysta velferð landsmanna til framtíðar.