Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum Áfram unnið að viðhaldi

Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fy…
Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð fjórum sinnum yfir daginn og eins verður opið frá kl. 19 á kvöldin og þar til vinna hefst á ný.

Viðhaldsvinna á á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði á Hringvegi (1) er hafin að nýju, en hlé var gert á vinnunni vegna veðurfars í júlí síðastliðnum.

Gert er ráð fyrir að unnið verði fram í miðjan september svo hægt sé að ljúka þeim verkefnum sem til stóð að klára í sumar, en aðgerðirnar eru háðar veðri.

Brúin var byggð árið 1947 og burðarþolið hefur minnkað í áranna rás. Ryðmyndun í köplum er orðin nokkur og því afar mikilvægt að stöðva þá þróun með því að klára þessa vinnu fyrir veturinn.

Loka þarf fyrir umferð um brúna meðan á framkvæmdum stendur og verða lokanir með sama fyrirkomulagi og fyrr í sumar. Unnið verður alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin. Opið verður fyrir umferð fjórum sinnum yfir daginn og eins verður opið frá kl. 19 á kvöldin og þar til vinna hefst á ný.

Vegagerðin hvetur vegfarendur til að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.

Nýjast