Í næstu viku verður boðið upp á bólusetningu gegn COVID-19 fyrir börn á aldrinum 12-15 ára á starfstöðvum HSN. Bóluefnið sem verður notað er frá Pfizer/BioNTech. Boð um bólusetningu verða send í gegnum Mentor og forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetninguna eða senda staðgengil 18 ára eða eldri með umboð. Börnum í 7. bekk sem verða 12 ára eftir 1. september býðst bólusetning síðar í haust.
Þetta kemur fram á vef HSN.
Bólusettum íbúum á hjúkrunarheimilum, einstaklingum 80 ára og eldri, þeim einstaklingum sem eru mjög ónæmisbældir og einstaklingum 60-79 ára verður einnig boðinn örvunarskammtur með Pfizer bóluefni á næstu vikum. Miðað er við að 26 vikur hafi liðið frá skammti númer tvö.
Þeir sem ekki hafa hafið bólusetningu er velkomið að mæta í auglýsta bólusetningartíma á Akureyri. Á heilsugæslustöðvum utan Akureyrar, vinsamlegast hafið samband og pantið tíma.
Bólusetningar 16.-20. ágúst eftir starfstöðvum:
Akureyri
Á Slökkvistöðinni á Akureyri fimmtudaginn 19. ágúst kl: 13-16
Blönduós
Á heilsugæslunni á Blönduósi miðvikudaginn 18. ágúst, nánari tímasetning send út með boðun
Dalvík
Í Bergi á Dalvik miðvikudaginn 18. ágúst kl: 13-17
Fjallabyggð
Á heilsugæslustöðinni á Siglufirði fimmtudaginn 19. ágúst kl: 13:30-15
Húsavík
Í Íþróttahöllinni miðvikudaginn 18. ágúst kl: 16-18
Norður Þingeyjarsýsla
Á Þórshöfn fimmtudaginn 19. ágúst, nánari tímasetning send út með boðun
Sauðárkrókur
Í Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki miðvikudaginn 18. ágúst kl: 15-19.