Hinn árlegi bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda er kominn til Akureyrar og verður hann opnaður kl. 10 í fyrramálið,
föstudag, í húsnæði verslunarinnar Húsgögnin heim. Þessa stundina er verið að stafla upp tonnum af bókum í
húsnæðinu en áætlað er að bjóða upp á 5-7 þúsund titla að þessu sinni. Bókaflóran er fljölbreytt og
ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og á góðu verði. Bókamarkaðurinn stendur fram á þriðudaginn 25. mars nk.