Boða til mótmæla á Akureyri

Mótmælt verður á Ráðhústorgi. Mynd/Þröstur Ernir
Mótmælt verður á Ráðhústorgi. Mynd/Þröstur Ernir

Boðað er til mótmæla á Ráðhústorginu á Akureyri kl. 17:00 í dag á Facebook undir heitinu „Ríkisstjórnin hverfi frá“ þar sem þess verður krafist að ríkisstjórnin segi af sér. Tilefnið er leynd forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og annarra ráðherra um aflandsfélög í skattaskjóli.

„Við hvetjum fólk til að mæta á Ráðhústorgið kl. 17 mánudaginn 4. apríl og mótmæla. Við krefjumst þess að ríkisstjórnin segi umsvifalaust af sér vegna spillingar og afglapa forstætisráðherra og sumra annarra sem í stjórninni eru,“ segir á síðunni.

Þá hafa rúmlega sjö þúsund manns hafa boðað komu sína á Austurvöll í dag þar sem krafist verður þess að ríkisstjórnin fari frá og nýjar kosningar fari fram.

Nýjast