Blár apríl-Vitundarvakning um einhverfu

Blár apríl, vitundarvakning um einhverfu, hefst formlega í dag 1. apríl. Á Íslandi og um allan heim munu fyrirtæki og stofnanir þátt í vitundarvakningunni með því að baða byggingar sínar í bláu ljósi í apríl. Styrktarfélag barna með einhverfu stendur fyrir vitundarvakningunni hér á landi. Styrktarsöfnun félagsins hefst formlega í dag og geta áhugasamir styrkt málefnið um 1000 kr. með því að hringja í 902-1010.

Í ár verður safnað fyrir námskeiðum fyrir foreldra barna með einhverfu sem og félagsfærninámskeiðum fyrir börn með einhverfu. Námskeiðin verða haldin í samvinnu við Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Nánari upplýsingar um söfnunina má finna hér:  https://www.facebook.com/einhverfa 

Hús og stofnanir sem taka þátt í átakinu með því að lýsa upp með bláum lit Harpa, Bessastaðir, Höfði, Ráðhúsið, Landsspítalinn, Smáralind, Fríkirkjan í HF, Hellisheiðarvirkjun, Orkuveitan, Orka náttúrunnar, Securitas, Vegagerðin, Radisson Blu og Kópavogskirkja

Blár apríl nær hámarki á föstudaginn 10. apríl. Þá munu börn í leikskólum og nemendur í grunn- og framhaldsskólum taka þátt í vitundarvakningunni með því að klæðast bláu og sýna afrakstur þemadaga um einhverfu. Stjórnendur Smáralindar munu hvetja verslunar- og veitingastaðaeigendur til að taka þátt í deginum með bláu þema. Þá verður Hreyfing með styrktarspinningtíma þar sem fyrirtækjum og einstaklingum gefst kostur á því að kaupa hjól til styrktar söfnuninni.

 Einhverfa kemur samfélaginu öllu við en hér að neðan eru athyglisverðar staðreyndir um einhverfu:

  • Eitt af hverju 88 barni fæðist með röskun á einhverfurófi
  • Hjá drengjum eru líkurnar 1 á móti 54 – fimm sinnum meiri en hjá stúlkum
  • Einhverfa er fötlun - ekki sjúkdómur og því ólæknandi
  • Það skiptir sköpum fyrir einhverfa að fá viðeigandi þjálfun eins fljótt og hægt er
  • Fögnum fjölbreytileikanum og tökum fólki eins og það er

Nánari upplýsingar um einhverfu má finna á einhverfa.isgreining.is og https://www.facebook.com/einhverfa

Nýjast