Björgunarsveitarmenn í Eyjafirði hafa haft í nógu að snúast

Björgunarsveitarmenn í Eyjafirði hafa verið á ferðinni frá því í gærkvöld, við aðstoða fólk sem lent hefur í vandræðum vegna veðurs og ófærðar. Félagar í Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, eru þessa stundina að aðstoða fólk í Dalsmynni, Húsvíkinga sem eru á leið til Akureyrar og áfram til útlanda. Víkurskarð er lokað.  

Snjóflóð féll veginn við Sauðanes miðja vegu milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar fyrr í dag og festust tveir bílar í flóðinu. Ekkert amaði að fólkinu en björgunarsveitarmenn frá Dalvík og Ólafsfirði hafa komið fólkinu til byggða og öðrum bílnum.

Í gærkvöld fóru félagar í Súlum upp á Öxnadalsheiði til að aðstoða fólk sem þar var í vandræðum. Á leiðinni aðstoðuðu þeir ökumann sem hafði lent utan vegar á Moldhaugahálsi og annan ökumann sem hafnaði utan vegar skammt frá Hrauni í Öxnadal. Á Öxnadalsheiðinni höfðu tveir bílar hafnað utan vegar, sem björgunarsveitarmenn aðstoðuðu og einnig aðstoðu þeir bílalest við að komast ofan af heiðinni. Björgunarsveitarmenn voru á Öxnadalsheiðinni í alla nótt.

Nýjast