Birkir Jón efstur í prófkjöri Framsóknarflokksins

Birkir Jón Jónsson alþingismaður og varaformaður Framsóknarflokksins sigraði í prófkjöri flokksins í Norðausturkjördæmi. Hann fékk 505 atkvæði í fyrsta sætið. Höskuldur Þórhallsson alþingismaður, sem einnig sóttist eftir fyrsta sætinu, fékk 647 atkvæði í fyrsta til annað sæti.  

Huld Aðalbjarnardóttir varð í þriðja sæti með 509 atkvæði í fyrsta til þriðja sætið. Sigfús Karlsson fékk 304 atkvæði í fyrsta til fjórða sæti. Fimmtán frambjóðendur gáfu kost á sér til framboðs í kjör um 8 efstu sætin. Kosið var um sætin á aukakjördæmisþingi sem haldið var á Egilsstöðum í dag en utankjörfundaratkvæðagreiðsla fór einnig fram á fjölmörgum stöðum í kjördæminu í gær og í fyrradag. Alls greiddu 928 atkvæði og varð niðurstaðan þesssi:

1. Birkir Jón Jónsson, alþingismaður, með 505 atkvæði í 1. sæti.
2. Höskuldur Þór Þórhallsson, alþingismaður, með 647 atkvæði í 1.-2. sæti.
3. Huld Aðalbjarnardóttir menningar-og fræðslufulltrúi Norðurþings, með 509 atkvæði í 1.-3. sæti.
4. Sigfús Karlsson, framkvæmdastjóri, með 340 atkvæði í 1.-4. sæti.
5. Svanhvít Aradóttir, forstöðuþroskaþjálfi, með 448 atkvæði í 1.-5. sæti.
6. Hallveig Björk Höskuldsdóttir, leiðtogi í málmvinnslu Alcoa, með 463 atkvæði í 1.-6. sæti.
7. Þórarinn Ingi Pétursson, bóndi og tamningamaður, með 497 atkvæði í 1.-7. sæti.
8. Anna Kolbrún Árnadóttir, sérkennari,með 397 atkvæði í 1.-8. sæti

Nýjast