Talsvert var að birkifrjói á Akureyri í júnímánuði. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur tekið saman frjótölur fyrir júnímánuð en á Akureyri fór heildarfjöldi frjókorna upp í 1151 frjó/m3 sem er meira en í meðalári (671 frjó/m3). Langalgengasta frjógerðin var birki en aðrar tegundir sem fóru yfir 10 frjó/m3 á einum degi voru víðir, gras og fura.
Á Akureyri mældust fyrstu birkifrjóin 2. júní og var frjótalan hæst þann 16. júní, 182 frjó/m3. Heildarfrjótala birkis var 796 frjó/m3 og aðeins einu sinni síðan mælingar hófust hefur hún verið hærri, það var í júní 2005. Birkifrjóum í lofti hefur fækkað ört og er frjótíma birkis um það bil að ljúka.
Grasfrjó undir meðaltali
Á Akureyri komu fyrstu grasfrjókornin fram 13. júní og var heildarfrjótala grass í júní aðeins 49 frjó/m3 sem er undir meðaltali. Aðalfrjótími grasa er nú framundan, það er júlí og ágúst.
Á vef Náttúrufræðistofnunar segir að þegar hlýtt er í veðri, þurrt og golu gætir eru flest frjókorn í lofti. Þá ættu þeir sem eru haldnir ofnæmi að vera á verði, sérstaklega nálægt óslegnu grasi. Á þannig dögum ætti einnig að forðast að þurrka þvott úti og sofa við lokaðan glugga. Eins er gott að gæta þess að slá gras áður en það blómgast því þá má koma í veg fyrir frjómyndun. Fari frjótölur grass yfir 10-20 frjó/m3 á einum degi má búast við að ofnæmiseinkenna verði vart.