Bíladagar á Akureyri hefjast á morgun, föstudaginn 13. júní. Öll formleg dagskrá fer fram á aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar við Hlíðarfjallsveg, fyrir utan bílasýninguna 17. júní í Boganum.
Hátíðin dregur að fjölda gesta víða af landinu en því miður hefur orðið vart við nokkurn glannaakstur á Bíladögum fyrri ára. Slíkur akstur er ólöglegur og samræmist engan veginn siðareglum Bíladaga sem höfuðáhersla er lögð á að allir virði. Hart verður tekið á þeim brotum sem kunna að koma upp og gildir þá einu hvort brotin eiga sér stað utan eða innan aksturssvæðis BA.
Tveir fundir þar sem farið hefur verið yfir ýmis atriði sem varða umferðaröryggi og fleira hafa verið haldnir í Ráðhúsi Akureyrarbæjar með fulltrúum sveitarfélagsins, Aflinu, Bílaklúbbi Akureyrar, lögreglu, slökkviliði, Kvennaathvarfi Akureyrar og Skátafélaginu Klakki sem sér um tjaldsvæðið að Hömrum.
Stjórnendur Bíladaga standa fyrir öflugri gæslu á tjaldsvæði Bíladaga og á viðburðum hátíðarinnar. Bætt verður verulega í löggæsluna þessa helgi og verða lögreglumenn á vakt bæði á merktum og ómerktum bílum. Starfsmenn umhverfismiðstöðvar hafa sett upp hraðahindranir víða um bæinn til að koma í veg fyrir spól og háskalegan hraðakstur sem er að sjálfsögðu bannaður.
Þjónusta verður ólík eftir tjaldsvæðum þessa daga. Á tjaldsvæði Bílaklúbbsins, neðan við aksturssvæði klúbbsins, er 18 ára aldurstakmark og er svæðið opið öllum gestum Bíladaga en ekki aðeins þeim sem keypt hafa passa á alla viðburði hátíðarinnar.
Fjölskyldutjaldsvæðið að Hömrum er opið um bíladaga líkt og alla daga ársins. Tjaldsvæðið að Hömrum er fyrst og fremst ætlað fjölskyldum og aðgangi stýrt inn á svæðið miðað við það. Aukin gæsla verður þessa helgi og gerðar eru ríkar kröfur til tjaldgesta um að næði sé virt á svæðinu svo bæði börn og fullorðnir geti notið dvalarinnar. 18 ára aldurstakmark er inn á tjaldsvæðið á Hömrum og yngri einstaklingum sem ekki verða í fylgd með foreldrum eða forráðamönnum verður vísað frá. Það dugar ekki að vera í fylgd með einhverjum sem er eldri en átján ára.
Fjölskyldutjaldsvæðið við Hrafnagil verður lokað fyrir 30 ára og yngri til þriðjudagsins 17. júní. Þar verður hliðvarsla og ströng gæsla til að stjórna aðgengi að svæðinu.
Munum góðar siðareglur Bíladaga:
Við göngum (keyrum) vel um bæinn okkar, jafnt gestir sem heimamenn.
Dagskrá Bíladaga er að finna hér.
akureyri.is segir frá