Báru 25 gaskúta út úr húsinu eftir að eldurinn kom upp

Þorbjörn Haraldsson slökkviliðsstjóri á Akureyri segir að þótt húsið við Hrafnabjörg á Akureyri sé illa farið, eftir brunann í morgun, þegar gassprenging varð þar inni, hafi litlu mátt muna að enn verr færi. Slökkviliðsmenn báru 25 gaskúta af öllum stærðum út úr húsinu eftir að eldurinn kom upp og því má fullyrða að þeir hafi verið í mikilli hættu við störf sín í morgun.  

"Við höfðum spurnir af því að þarna gætu verið gaskútar innandyra en áttum ekki von á því að þar inni mættu okkur 25 fallbyssukúlur," sagði Þorbjörn. Maðurinn sem var inni í húsinu þegar sprengingin varð, var fluttur á slysadeild FSA með brunasár en til stendur að fljúga með hann suður á Landsspítalann. Hundur mannsins sem einnig komst út úr húsinu, fannst upp við dvalarheimilið Hlíð og hafði hann sviðnað nokkuð, að sögn Þorbjörns. Við sprenginguna rifnuðu upp járnplötur á þaki hússins, auk þess sem veggir sprungu út, svo mikill var krafturinn. Slökkvistarfi er lokið en slökkviliðsmenn standa vakt við húsið.

Nýjast