Akureyrarbær áréttar að kvaðir sem þinglýstar voru á eignina 14. ágúst sl. um forkaupsrétt Akureyrarbæjar, heimilt notagildi fasteignar og umgengnisrétt og tengingar á lóð verði teknar inn í texta kaupsamnings við sölu hennar. Um er að ræða 2000 fermetra líkamsræktarhús milli Íþróttahallarinnar og Sundlaugar Akureyrar og er það keypt af Hömlum, dótturfélagi Landsbankans. Stefnt er að því að opna þar líkamsræktarstöð í janúar. Jafnframt eignast Sigurður Gestsson, sem hefur til fjölda ára rekið Vaxtarræktina í kjallara Íþróttahallarinnar, fjórðungshlut í Átaki heilsurækt á móti núverandi eigendum. Vaxtarræktin hættir starfsemi í núverandi húsnæði og verður hluti af rekstri Átaks heilsuræktar í hinu nýja líkamsræktarhúsi. Ekki er komið nafn á hina nýju líkamsræktarstöð við Skólastíg, sem eins og fyrr segir verður að óbreyttu opnuð í síðari hluta janúarmánaðar.