Bæjarstjórn Akureyrar lýsir ánægju með ákvarðanir í samgöngumálum

Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í gær fóru fram umræður um samgöngumál. Þá lagði Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri fram tillögu að bókun þar sem bæjarstjórn lýsir yfir mikilli ánægju með nýlegar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar í samgöngumálum.

Í fyrsta lagi, með þá ákvörðun að ráðast í gerð Vaðlaheiðarganga strax á næsta ári. Útlit er fyrir að göngin verði komin í gagnið um svipað leyti og framkvæmdir við álver á Bakka hefjast, en nú í vikunni var ákveðið að ráðast í gerð formlegs umhverfismats vegna álversins. Þá segir í bókuninni að það sé ekki síður mikilvægt að strax í ár verður hafist handa við lengingu Akureyrarflugvallar. Sveitarstjórnir á svæðinu hafa lengi barist fyrir þessum framkvæmdum sem styrkja til muna forsendur fyrir vexti og atvinnuþróun á Norðausturlandi. Í öðru lagi, nýlegt samkomulag ríkis og borgar um uppbyggingu samgöngumiðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll. Bygging samgöngumiðstöðvar er löngu tímabær framkvæmd sem bætir til muna aðbúnað þeirra sem ferðast flugleiðis til og frá höfuðborginni. Jafnframt verður í samgöngumiðstöðinni aðstaða fyrir fleiri flugrekstraraðila í innanlandsflugi sem ætti að skapa möguleika á samkeppni í þessum rekstri.

Bæjarstjórn samþykkti bókun bæjarstjóra með 10 samhljóða atkvæðum en Oddur Helgi Halldórsson sat hjá við afgreiðslu.

Nýjast