Bæjarstjóri og leikskólabörn tóku fyrstu skóflustungur að Naustaskóla

Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri og um 70-80 börn á leikskólanum Naustatjörn tóku í dag fyrstu skóflustungurnar að fyrri áfanga Naustaskóla, grunnskóla Naustahverfis. Jafnframt skrifaði bæjarstjóri undir verksamning við SS Byggi, sem átti lægsta tilboð í byggingu og fullnaðarfrágang lóðar og húss. Fyrirtækið bauð 567,2 milljónir króna í verkið, eða rúm 104% af kostnaðaráætlun. Alls buðu sex fyrirtæki í verkið og voru þau öll tilboðin yfir kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á um 544,5 milljónir króna. Bygging fyrri áfanga er um 2.300 fermetrar að stærð. Alls verður skólabyggingin 6.200 fermetrar, lóð um 21.000 fermetrar og íþróttasalur verður 33x18 metrar. Heildarkostnaður við framkvæmdina er áætlaður um tveir milljarðar króna.

Nýjast