Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir stuðningi við álver á Bakka

Byggðarráð Norðurþings, Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson og Þráinn Gunnarsson ásamt sveitarstjóra Bergi Elíasi Ágústssyni, komu á fund bæjarráðs Akureyrar í morgun til viðræðna um stöðu mála varðandi fyrirhugað álver á Bakka. Í kjölfarið var samþykkt bókun þar sem fram kemur að bæjarráð Akureyrar lýsir yfir eindregnum stuðningi við áform um uppbyggingu álvers á Bakka við Húsavík. Á undanförnum árum hefur alvarlegur samdráttur í fiskvinnslu og landbúnaði haft veruleg áhrif á afkomu fólks, atvinnuöryggi og búsetu á svæðinu. Á síðustu 10 árum hefur íbúum á svæðinu frá Húsavík til Raufarhafnar, sem nú heitir Norðurþing, fækkað um 15%. Mest hefur fækkunin verið í aldurshópnum 40 ára og yngri, en í þeim aldursflokki hefur íbúum fækkað um 25%.
Kjölfesta í atvinnumálum er nauðsynleg til þess að snúa vörn í sókn og viðhalda gróskumikilli byggð á Norðausturlandi. Fyrirhugað álver á Bakka getur skapað þessa kjölfestu. Álverið mun skapa um 300 ný framtíðarstörf og afleidd störf verða mun fleiri og áhrifa þeirra mun gæta langt út fyrir Norðurþing, ekki síst á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Bæjarráð skorar því á stjórnvöld að beita sér fyrir því að af þessum framkvæmdum geti orðið sem fyrst, segir ennfremur í bókun bæjarráðs. Baldvin H. Sigurðsson sat hjá við afgreiðslu.

Nýjast