Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hefur auglýst eftir metnaðarfullum og kraftmiklum aðila í starf sveitarstjóra. Nýr sveitarstjóri tekur við
starfinu af Bjarna Kristjánssyni, sem verið hefur sveitarstjóri undanfarin ár. Bjarni var sveitarstjóri á síðasta kjörtímabili en eftir
kosningarnar fyrir tæpum tveimur árum, var hann aðeins endurráðinn til tveggja ára. Í Eyjafjarðarsveit er rekinn öflugur landbúnaður.
Vegna nálægðar við Akureyri, býður sveitarfélagið kosti hins klassíska sveitarfélags og um leið eiginleika þéttbýlis,
eins og segir m.a. í auglýsingu um starfið. Umsóknarfrestur er til 16. mars nk.
Eins og fram kom í Vikudegi nýlega hafa íbúar í Eyjafjarðarsveit náð því marki að verða fleiri en eitt þúsund,
í fyrsta sinn við formlega mannfjöldaskráningu sem miðar við 1. desember ár hvert. Íbúar hafa þó af og til náð þeirri
tölu áður. Nokkuð hefur verið byggt af nýjum íbúðum í sveitarfélaginu. Um þessar mundir er verið að úthluta 15
nýjum lóðum á nýjum skipulagsreit í Reykárhverfi, sem töluverður áhugi var fyrir.